Nánar
 
23.6.2010 10:39:46
Aðalsteinn landar fyrsta farmi ársins af frystum makríl

 

Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom inn til hafnar í gær með fullfermi af frystum makríl. Um 600 tonn af frystum afurðum eru í lestum skipsins og svo landaði skipið einnig 310 tonnum af  makrílafskurði og 350 tonnum af síld sem veiðist sem meðafli. Allur makríll sem Aðalsteinn veiðir er hausaður og slógdreginn og seldur til manneldisvinnslu í Austur Evrópu. Það gekk mjög vel á miðunum að sögn Daða Þorsteinssonar skipstjóra en aflinn var blandaður af síld og makríl. Síld sem veiðist sem meðafli með makríl er ekki vinnsluhæf og fer því til frekari vinnslu í fiskimjölsverksmiðju Eskju hf. Á meðfylgjandi mynd sem Ingi Ragnarsson tók má sjá Aðalsteinn útá firði í gærdag að klára að frysta síðustu tonnin af makríl.

 

 

 
Stækka texta Minnka texta Prenta Símanúmer Ábendingar
 
Strandgata 39 - Sími 470 - 6000 - Fax 470 - 6001 - eskja@eskja.is