Umsóknir
 
25.7.2010
Golfmót Eskju

Golfmót Eskju var haldið á Byggðarholtsvelli laugardaginn 24. júlí. Veður var gott og voru  31 keppendur skráðir til leiks. Keppt var í einum opnum flokki- höggleikur án forgjafar og punktakeppni. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í höggleik og 4 efstu sætin í punktakeppni.  Einnig voru veitt tvenn nándarverðlaun . Glæsilegar veitingar voru allan daginn í boði Eskju.

 

Úrslit voru sem hér segir :


meira ->

14.7.2010
Heimsókn frá Havsbrun

Starfsfólk Havsbrun frá Fuglafirði í Færeyjum kom og heimsótti fiskimjölsverksmiðju Eskju hf. fyrr í sumar og var vel tekið á móti vinum okkar frá Færeyjum í Randulffssjóhúsi sem byggt var árið 1890.


meira ->

14.7.2010
Löndunarfréttir

Bæði skip Eskju hf. komu inn til löndunar með afla á mánudag eftir nokkra daga á veiðum. Aðalsteinn kom inn með fullfermi eða 640 tonn af frystum hausuðum makríl og fer aftur út strax eftir löndun á makrílveiðar.


meira ->

10.7.2010
Mistök við löndun á Eskifirði

Sunnudaginn 4. Júlí varð starfsmanni Tandrabergs ehf. á mistök við löndun sem leiddi til þess að löndunarvatn úr Huginn VE 55 blandaðist neysluvatni bæjarins. Tandraberg ehf. er þjónustuaðili hjá Eskju hf. og sér um allar landanir og útskipanir fyrir félagið og önnur fyrirtæki á svæðinu. Eskja hf. hefur gert breytingar á lögnum og vinnufyrirkomulagi í löndunarhúsi til að fyrirbyggja að svona lagað geti komið fyrir aftur og hefur unnið náið með bæjaryfirvöldum vegna þessa óheppilega máls.

Eskja hf. harmar atvikið og vonast til að það valdi bæjarbúum sem minnstum óþægindum.


meira ->

 
 
UPPLÝSINGAR
 
   
 
Strandgata 39 - Sími 470 - 6000 - Fax 470 - 6001 - eskja@eskja.is
LANDANIR
26.7.2010
Jón Kjartansson SU 111
landaði 1820tonnum af makríl, 2 tonnum af kolmunna og 52 tonnum af síld sem fóru til vinnslu í fiskimjölsverksmiðju Eskju hf

22.7.2010
Huginn VE 55
landaði 470 tonnumaf makríl og makríl afskurði og 60 tonnum af síld sem fór til vinnslu í Fiskimjölsverksmiðju Eskju

22.7.2010
Aðalsteinn Jónsson SU 11
landaði 252 tonnum af makríl og makrílafskurði sem fór til vinnslu í fiskimjölsverksmiðju Eskju og 578 tonnum af frosnum makríl

21.7.2010
Jón Kjartansson SU 111
landaði 1620 tonnum af síld, 55 tonnum af makríl og 12 tonnum af kolmunna sem fóru til vinnslu í Fiskimjölsverksmiðju Eskju





Stækka texta Minnka texta Prenta Símanúmer Ábendingar