Hágæðavörur úr íslenskum fiski

Ábyrgar veiðar í 70 ár

Eskja er fjölskyldufyrirtæki á Eskifirði sem hefur verið leiðandi afl í íslenskum sjávarútvegi síðustu 70 árin. Fyrirtækið hét áður Hraðfrystihús Eskifjarðar og var stofnað 8. maí 1944 í því skyni að skjóta styrkum stoðum undir fábreytilegt atvinnulíf bæjarins. Stofnendur félagsins voru um þrjú hundruð einstaklingar og fyrirtæki á staðnum. Alla tíð síðan hefur Eskja verið kjölfestan í atvinnulífi Eskifjarðar. Félagið hefur vaxið og dafnað í áranna rás og starfsmenn fyrirtækisins eru í dag um 100 talsins. Markmið okkar er að standa í fremstu röð, nota ávallt bestu framleiðslutækni sem völ er á og framleiða hágæðavörur úr íslenskum fiski fyrir kröfuhörðustu markaði heims. Þá leggjum við einnig ríka áherslu á fræðslu og endurmenntun starfsfólks okkar. Eskja hefur frá fyrstu tíð haft það að leiðarljósi að umgangast fiskimiðin umhverfis Ísland af ábyrgð og virðingu, í samræmi við lög og reglur og að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar.

Áhöfnin á Jóni sífulla - Þetta skip var eign Jóns Kjartanssonar hf. sem var hlutafélag í eigu bræðranna Aðalsteins Jónssonar og Kristins Jónssonar.  Það var í krafti auðs þess félags sem þeir bræður keyptu meirihluta í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar.
Lilli og Palli á hálum ís - Hólmanes var skip í eigu Hraðfrystihúss Eskifjarðar og var annað skip þess félags sem bar þetta nafn. Það aflaði fyrir félagið á íshafsárumum 1965-1968.
Heillavon Hraðfrystihússins - Hólmanes, fyrsta skip Hraðfrystihúss Eskifjarðar, var smíðað í Noregi. Því var ætlað að sjá landvinnslu fyrir hráefni til frystingar og gerði það fyrstu árin, en datt svo inn í síldarævintýrið sem hófst um 1960 og lauk 1968.

Nútímalegt hátæknifyrirtæki

Eskja starfrækir nú fimm skip, fiskimjölsverksmiðju og eina háþróuðustu og skilvirkustu uppsjávarvinnslu sem fyrirfinnst í Norður-Atlantshafi. Nýtt uppsjávarfrystihús okkar er 7.000 m2 að stærð og býr yfir vinnslugetu upp á 900 tonn á sólarhring. Þá er vinnslugeta fiskimjölsverksmiðjunnar um 1.000 tonn á sólarhring. Starfsemi okkar er knúin með íslensku rafmagni sem framleitt er úr 100% endurnýjanlegum orkugjöfum.

Þorsteinn Kristjánsson

Forstjóri

Þorsteinn Kristjánsson er forstjóri Eskju og hefur starfað hjá fyrirtækinu í næstum fjóra áratugi. Þorsteinn tók við stöðu forstjóra árið 2009 en þar áður gegndi hann stöðu stjórnarformanns Eskju og var jafnframt skipstjóri hjá félaginu. Þorsteinn brautskráðist með skipstjórnarpróf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1976 og hefur mikla starfsreynslu í íslenskum sjávarútvegi.

Erna Þorsteinsdóttir

Stjórnarformaður

Erna Þorsteinsdóttir varð stjórnarformaður Eskju árið 2009. Hún nam viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti við Háskólann á Bifröst og útskrifaðist þaðan sem viðskiptafræðingur árið 2016. Hún var annar eigenda útflutningsfyrirtækisins Fiskimiða ehf. sem varð dótturfyrirtæki Eskju árið 2009 og nefnist nú Eskja Sales & Export. Erna gegnir jafnframt stöðu framkvæmdastjóra þar í dag.

Páll Snorrason

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs

Páll Snorrason er framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Eskju og hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 2006. Hann útskrifaðist með cand.oecon gráðu frá Háskóla Íslands árið 2004 og lauk MBA-námi frá IESE í Barcelona árið 2015. Hann starfaði á endurskoðunarsviði KPMG og sem sérfræðingur á fjármálasviði hjá Actavis Group áður en hann kom til starfa hjá Eskju.

Sigrún Ísaksdóttir

Skrifstofustjóri

Sigrún Ísaksdóttir hóf störf sem skrifstofustjóri Eskju í febrúar árið 2018. Áður vann hún í áratug sem þjónustustjóri Arion banka á Egilsstöðum. Sigrún útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2005. Hún er vottaður fjármálaráðgjafi og útskrifaðist einnig með meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst árið 2017.

Daði Þorsteinsson

Útgerðarstjóri

Daði Þorsteinsson tók við sem útgerðastjóri Eskju árið 2024. Daði er fæddur og uppalin á Eskifirði og býr þar ásamt fjölskyldu sinni. Hann útskrifaðist með skipstjórnarpróf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1998 og hóf þá störf sem stýrimaður á Hólmaborginni og leysti af sem skipstjóri. Hann hefur verið starfandi sem skipstjóri á Aðalsteini Jónssyni frá árinu 2006. Daði hefur verið viðloðandi fyrirtækið allt sitt líf og unnið þar meira og minna í rúm 35 ár.

Benedikt Jóhannsson

Yfirmaður landvinnslu

Benedikt Jóhannsson er yfirmaður landvinnslu hjá Eskju. Hann hefur mikla reynslu af störfum fyrir fyrirtækið , hóf þar fyrst störf árið 1979 sem aðstoðarverkstjóri. Síðan hefur hann gegnt ýmsum störfum fyrir félagið, þar á meðal sem verkstjóri, framleiðslustjóri, útgerðarstjóri og nú sem yfirmaður landvinnslunnar.

Haukur Jónsson

Rekstrarstjóri mjöl- og lýsisvinnslu

Haukur Jónsson er rekstrarstjóri mjöl- og lýsisvinnslu Eskju. Hann hóf störf í vinnslunni árið 1978 og gegndi ýmsum störfum þar áður en hann var ráðinn rekstrarstjóri hennar árið 1996. Haukur situr jafnframt í stjórn félags íslenskra fiskimjölsframleiðenda fyrir hönd Eskju.

Hlynur Ársælsson

Rekstrarstjóri uppsjávarfrystihúss

Hlynur Ársælsson er rekstrarstjóri uppsjávarfrystihúss Eskju og hefur stundað sjómennsku frá unglingsárum. Hann vann á öllum skipum Eskju á árunum 1991 til 2005 en söðlaði þá um og vann hjá Samherja í Afríku í áratug. Hann sneri aftur til Eskju árið 2016 og hóf störf sem verkstjóri í nýrri uppsjávarvinnslu fyrirtækisins. Í framhaldi af því tók hann svo við sem rekstrarstjóri vinnslunnar árið 2017.

Tómas Valdimarsson

Yfirmaður viðhaldsmála

Tómas Valdimarsson er yfirmaður viðhaldsmála hjá Eskju. Tómas útskrifaðist sem meistari í vélvirkjun árið 1987 og hefur mikla reynslu bæði til sjós og lands. Tómas var svæðisstjóri hjá Hamri á árunum 2001-2007. Hann starfaði síðan á frystiskipinu Aðalsteini Jónssyni en eftir það fór hann til Afríku og starfaði þar í tvö ár á frystiskipi. Tómas hóf svo störf við uppsjávarvinnslu Eskju árið 2016 og hefur gengt stöðu yfirmanns viðhaldsmála hjá Eskju frá ársbyrjun 2020.

Aðalsteinn Jónsson

SU-11

Smíðaár: 2004
Stærð: 4419 brúttótonn
Lestarrými: 2200 rúmmetrar

Jón Kjartansson

SU-111

Smíðaár: 2003
Stærð: 2424,3 brúttótonn
Lestarrými: 2170 rúmmetrar

Guðrún Þorkelsdóttir

SU-211

Smíðaár: 1999
Stærð: 1773 brúttótonn
Lestarrými: 1679 rúmmetrar