Jafnlaunastefna Eskju
Jafnlaunastefna Eskju er órjúfanlegur hluti af launastefnu og gildir fyrir yfir alla starfsmenn félagsins. Jafnlaunastefnan skal uppfylla viðeigandi viðmið um jafnlaunastefnur í samræmi við ÍST 85:2012, kafla 4.2. Eskja fylgir ákvæðum laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og kveður á um markmið og aðgerðir til að tryggja starfsfólki Eskju þau réttindi sem koma fram í 6.gr laganna.
Eskja greiðir laun sem taka mið af þeim kröfum sem starfið gerir um menntun/þekkingu, hæfni og ábyrgð. Það er stefna Eskju að allir starfsmenn njóti jafnra launa og sömu kjara og réttinda fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn kynbundinn launamunur sé til staðar hjá félaginu. Um skilgreiningu á launum og kjörum vísast til 9. og 10. mgr. 2. gr. laga og 19. gr. fyrrnefndra laga. Eskja fylgir öllum viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma. Launaákvarðanir skulu vera gegnsæjar, málefnalegar og vel rökstuddar.
Til að framfylgja jafnlaunastefnunni skuldbindur Eskja sig til að skjalfesta, innleiða, viðhalda og bæta stöðugt stjórnun jafnlaunakerfisins í samræmi við kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og ákvarða hvernig kröfur hans verða uppfylltar. Eskja hefur innleitt verklag og skilgreint viðmið við ákvörðun launa þar sem hver og einn fær greitt fyrir starf sitt út frá verðmæti þess óháð kyni, kynvitund, eða öðrum ómálefnalegum ástæðum.
Eskja skuldbindur sig m.a. til að:
• Starfrækja vottað jafnlaunastjórnunarkerfi, skjalfesta og viðhalda með stöðugum umbótum.
• Fylgja viðeigandi lögum,reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og staðfesta hlítingu við lög.
• Flokka störf út frá þeim kröfum sem þau gera og framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf til að ganga úr skugga um hvort óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar.
• Kynna starfsfólki niðurstöður launagreiningar hvað varðar óútskýrðan kynbundinn launamun.
• Bregðast við frábrigðum með stöðugum umbótum og eftirliti.
• Gera innri úttekt á öllum útgefnum skjölum sem tilheyra jafnlaunastjórnunarkerfi eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti.
• Halda rýni stjórnenda árlega.
• Birta stefnuna á innri vef og kynna hana öllu starfsfólki.
• Gera stefnuna aðgengilega almenningi á vefsíðu Eskju
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á því að stefnunni sé framfylgt.
Framkvæmdarstjóri ber ábyrgð á jafnlaunakerfi Eskju og sér til þess að kerfið sé skjalfest, innleitt og stöðugt uppfært. Árlega er framkvæmd launagreining þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmætstörf og kynna skal starfsfólki niðurstöður launagreiningar. Allir stjórnendur eru skuldbundnir til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frábrigðum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu.
Samþykkt á stjórnarfundi þann 07. 06. 2024